Það er vert að muna, að á hverjum degi getum við byrjað á að þakka fyrir að vakna.
- Unnar Erlingsson
- Oct 2, 2019
- 1 min read

Það er ekki svo með alla daga að regnboginn skíni og fuglarnir syngja. Hversdagurinn er líklegur til að minna okkur á að það er fátt framundan til að gleðjast yfir. Enn einn vinnudagurinn, enn einn rigningardagurinn.
En það er ekki hugarfar þess þakkláta. Hvernig sem viðrar, hvað sem á bjátar, hvernig sem lífið er, þá er alltaf eitthvað sem við getum þakkað. Alltaf.
Ég er þakklátur fyrir það.
Comments