top of page
Profile
Join date: Oct 9, 2018
Posts (757)
Apr 12, 2026 ∙ 1 min
Beðið eftir vorinu
Nú veturinn loksins burtu fer, vor-vísitalan hækkar hjá mér. Með útsýnið bjarta og sólina í hjarta, sé ég hve fallegur heimurinn er. Vor-vísitalan mælir ekki hækkandi verð og aukinn kostnað heldur hækkandi sól og birtustig sinnis. Lofthiti hækkar, fötum fækkar og skapið batnar. Svo kemur næsta lægð, gul veðurviðvörun. Fjallvegir lokast og flugferðum frestað. Tímabundin lokun lífs og gleði. En vísitalan heldur áfram að hækka, óþægindin verða auðveldari viðureignar, fara minna í skapið, verða...
4
0
Mar 28, 2026 ∙ 1 min
Flug yfir fannfergið
Hefja okkur upp yfir frosna jörð og mótlætið sjálft og leyfum krumma að minna okkur á seigluna.
6
0
Mar 12, 2026 ∙ 1 min
Frosið augnablik
Ég stend og stari inn í frostþokuna. Orkan dvín, birtan minnkar, eins og ský sé dregið fyrir sálina. Það er vetur. Veturinn, eins og aðrar árstíðir, er hluti af hringrás lífsins. Tímabil dvala, undanfari vonarinnar. Orkan er ekki horfin, hún stendur aðeins í stað, vonin bíður síns tíma. Líf sem neitar að gefast upp. Þó sálin sjáist ekki í þokinni, þá er ljós geymt innra með þér, bjartara en þú heldur. Væntu þess að blómstra á ný. Vorið finnur þig aftur. Ekki gefast upp.
8
0
Unnar Erlingsson
Admin
More actions
bottom of page