Maður er manns gaman er gamalt, gott og gilt máltæki. Þó vissulega getum við sótt gleðina víða, þá er ekkert eins og að gleðjast saman, gleðja aðra og leyfa öðrum að gleðja mann sjálfan. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er það fólkið í lífi okkar sem öllu máli skiptir. Að elska og vera elskuð.
Gleðjið og yður mun gleði gefin.
Comments