top of page

Að elska og vera elskuð

"Enga gjöf stærri hef ég fengið en þá að hlúa að Stefáni sem best ég gat þegar hann þurfti mest á mér að halda. Sú gjöf og örlæti allra í okkar garð skilur eftir þann sannleik að ekkert sem við aðhöfumst í lífinu er nokkurs virði nema að það sé fyrir aðra gert. Við lifum til þess að elska og vera elskuð. Allt annað krakkar mínir er drasl." - Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Stefán Karl Stefánsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Það var stór hluti þjóðarinnar sem fylgdist með Stefáni Karli Stefánssyni leikara síðustu misserin fyrir andlát hans á nýliðnu ári. Enda var hann virkur á samfélagsmiðlum og sagði opinskátt frá því sem hann var að takast á við, þó aldrei svo að það væri aðalatriði. Hann hafði frá mörgu mikilvægara að segja og margir lögðu við hlustir.


Í nýlegri færslu á snjáldurskinnu skrifaði Steinunn Ólína eiginkona Stefáns Karls þessi orð sem á undan fara. Þau snertu við mér. Þó ég hafi ekki tekist á við dauðann eða veikindi með nokkrum svipuðum hætti þá hef ég fengið að vera sá sem annast og undanfarin ár sá sem um er annast. Og þetta er svo sannarlega einnig mín niðurstaða, það eina sem skiptir raunverulegu máli er fólkið í lífi okkar, eða eins og Steinunn Ólína orðar það: "ekkert sem við aðhöfumst í lífinu er nokkurs virði nema að það sé fyrir aðra gjört. Við lifum til að elska og vera elskuð."


Allt annað er duft og eftirsókn eftir vindi.

37 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page