top of page

Beðið eftir vorinu

Nú veturinn loksins burtu fer,

vor-vísitalan hækkar hjá mér.

Með útsýnið bjarta

og sólina í hjarta,

sé ég hve fallegur heimurinn er.



Vor-vísitalan mælir ekki hækkandi verð og aukinn kostnað heldur hækkandi sól og birtustig sinnis. Lofthiti hækkar, fötum fækkar og skapið batnar. Svo kemur næsta lægð, gul veðurviðvörun. Fjallvegir lokast og flugferðum frestað. Tímabundin lokun lífs og gleði.


En vísitalan heldur áfram að hækka, óþægindin verða auðveldari viðureignar, fara minna í skapið, verða auðveldari viðureignar. Vonin hækkar á lofti og snjólögum fækkar. Hlutabréf hamingjunnar hækka í virði ef þú opnar faðminn og fagnar með. Vonin lifir, vorið nálgast.


Comments


  • instagram
  • facebook
  • tumblr
  • twitter

©2016-2023 #ekkigefastupp

bottom of page