Unnar Erlingsson

Mar 29, 20201 min

Betra að klára seint en leggja ekki af stað

Updated: Jan 31, 2023

Það er betra að klára seint
 
en leggja ekki af stað.
 
Byrja að skrifa það sem í huga kemur
 
en að koma engu á blað.
 

 
Fara frekar hægt í byrjun
 
og ljúka því sem hafið er
 
en að þeytast stefnulaust af stað,
 
koma engu í verk og gleyma sér.
 

Góðir hlutir gerast hægt segir einhversstaðar. Viti menn, það er sannleikskorn í þeim orðum.

Það var nú stúdentsprófið mitt sem varð kveikjan af þessum línum. Þrjátíu og einu ári eftir að ég hóf menntaskólagöngu mína, lauk ég prófi og útskrifaðist sem stúdent af náttúrufræðibraut Menntaskólans við Hamrahlíð. Það var í desember 2019.

Skrifaði um það nokkrar línur í pistlinum "Sigur eilífðarstúdentsins" sem hægt er að lesa hér.

#ekkigefastupp

    940
    5