Unnar Erlingsson

Apr 26, 20191 min

Þrautir þreytunnar

Þreyta er þraut þess sem þreyir án þróttar.
 
Þrautirnar hefjast þegar þróttinn þverr.
 
Þróttleysi þolir þó enginn til lengdar
 
Þó að þú þykist, því er nú verr.

Þrautir þreytunnar

Síðan ég veiktist hefur þreyta og þróttleysi verið eitt af mínum daglegu viðfangsefnum. Myndin af Öldunni minni tengist því ekki beint, nema hvað hún þarf að takast á við afleiðingar veikinda minna sem ég veit að getur tekið verulega á.

#ekkigefastupp

    200
    0