Unnar Erlingsson

Aug 23, 20191 min

Milli heima og geima 

Hvort í sínum heimi er
 
hverfast milli geima,
 
hvert svo sem þau ætla sér
 
þau halda sig bara heima.
 

 

Ester og Nói á góðri stundu yfir helgarteiknimyndunum, nú er orðið meira spennandi að horfa á 5 tommu skjá og geta stjórnað honum sjálfur heldur en að horfa á stóra sjónvarpið sem erifðara er að stjórna.

Allt milli heima og geima er að finna í örsmárri snjalltækninni sem finna má í flestum litlum lófum í dag.

Okkur er vissulega í lófa lagið að standa upp og leggja tæknina frá okkur, en hún veitir okkur líka ótakmarkað ferðafrelsi án þess að þurfa að standa upp.

#Nói #Ester

    300
    0